Tómas Þorvaldsson
Lögmaður
tomas@viklaw.is
Tómas Þorvaldsson varð einn af eigendum VÍK Lögmannsstofu í febrúar 2011. Fram að því og frá 1987 var hann einn eigenda Lögmanna við Austurvöll. Tómas útskrifaðist með embættispróf í lögum frá Háskóla Íslands 1981 og öðlaðist leyfi málflutnings fyrir héraðsdómi árið 1983. Tómas hefur lengst af lögmannsferli sínum starfað að málefnum tengdum hugverkarétti og félagarétti. Samningagerð og ráðgjöf á sviði hugverkaréttar hafa verið megin viðfangsefni hans ásamt setu í stjórnum félaga á þessu sviði sem og í ýmsum nefndum og ráðum sem hugverkarétti tengjast.
Helstu starfssvið:
Ráðgjöf við kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslufyrirtæki og samningagerð í þessu sambandi, svo sem samningar við leikstjóra, handritshöfunda, tónhöfunda, samframleiðslusamningar, fjármögnunarsamningar, dreifingarsamningar, stofnun félaga, styrkjaumsóknir o.fl.
Samningagerð á sviði tónlistarútgáfu, einkum erlendis, samningar við útgáfufyrirtæki, publishing, umboðsmenn, umboðsfyrirtæki, stofnun félaga o.fl. í því sambandi.
Samningagerð og ráðgjöf hvað varðar, hugbúnað, tölvuleiki, margmiðlun, lyfjaþróun, leikhús, bókaútgáfu.
Ráðgjöf við frumkvöðla og sprotafyrirtæki innan skapandi greina, stofnun fyrirtækja, öflun hugverkaréttinda og lögvernd þeirra.
Ráðgjöf og verkefni við uppbyggingu og verndarstefnu vegna hugverkaréttinda fyrirtækja og einstaklinga, þar með talið ráðgjöf á sviði vörumerkja, léna, einkaleyfa og hönnunarréttar.
Nefndarstörf og stjórnir:
Formaður Orators félags laganema 1978-1979.
Formaður undirbúningsnefndar Lögfræðiaðstoðar Orators 1979-1980.
Höfundaréttarnefnd frá 1994.
Í stjórn Höfundaréttarfélags Íslands frá 2003.
Í stjórn Innheimtumiðstöðvar gjalda (IHM) frá 1994.
Í stjórn Kvikmyndasjóðs Íslands 1997-2000.
Formaður Samstarfsnefndar Norrænna kvikmyndaframleiðendasamtaka 1993-1995.
Laganefnd Alþjóða kvikmyndaframleiðendasamtakanna (FIAPF) 1994-1998.
Í stjórn AGICOA (Alþjóðleg innheimtusamtök vegna kvikmyndaverka), frá 1995-2011.
Framkvæmdastjóri og lögfræðingur Sambands Íslenskra kvikmyndaframleiðenda, frá 1987 til 2001. Lögfræðingur Framleiðendafélagsins SÍK frá 2001.
Sat í Háskólaráði Háskóla Íslands frá 2014-2018.
Meðlimur í LESI (The Licensing Executives Society International).
Meðlimur í ALAI.
Framkvæmdastjóri samningasviðs og lögfræðingur Flugfélagsins Atlanta hf. frá 1988 til 1992.
Stjórnarformaður Lyfjaþróunar hf. frá 2001 til 2004.
Stjórnarformaður Latabæjar ehf. frá 2007-2011.
Stjórnarformaður Nepsone ehf. frá 2016.
Hann hefur flutt fyrirlestra við Háskóla Íslands um höfundarétt og við Háskólann í Reykjavík um höfundarétt og hugverkarétt sem og hjá Lillehammer Kunnskapspark. Ennfremur flutt fyrirlestra um höfundarétt fyrir ýmis félagasamtök.